Skip to content

Þyngdarteppi frá Ró

27.900 kr
Size

Þyngdarteppið frá Ró er ótrúlega mjúkt og þægilegt þungt teppi sem veitir þér himneska slökun. Þyngdarteppin eru sögð kvíðaslakandi og veita djúpa slökun, betri svefn og yndislega öryggistilfinningu og má líkja við þétt faðmlag. Fást í 6 kg. og 8 kg. Þyngdin fer eftir þyngd eigandans og á að vera ca. 10% af hans eigin þyngd.

6kg teppi er á 27.900 kr

8kg teppi er á 28.900 kr

10kg teppi er á 29.900 kr

Þyngdarteppin eru 150x200 cm (8kg) 150x180 cm (6kg)

Kostir notkunar þyngdarteppa:

*Getur hjálpað með kvíða.

*Getur hjálpað með svefnleysi.

*Getur hjálpað einstaklingum með einhverfu og aspergers með að ná ró.

*Getur hjálpað einstaklingum með ADHD með að ná ró.

*Veitir öryggistilfinningu og líkist  hlýju faðmlagi.

Hugmyndafræðin á bakvið þyngdarteppi eru byggð á "DTP" það stendur fyrir deep touch pressure eða djúpsnerti þrýstingur ef við íslenskum þetta vel. Þá er þunga dreift yfir líkamann og við það losnar um serotinin í líkamanum sem að breytist í melatonin og við það kemur ró á taugakerfið. 

Vörumerkið Ró er nýtt íslenskt vörumerki.

Efni:
Ytra efni: 100 % mink efni eða eins og við þekkjum Pólýester
Fylling: Sílikon perlur (agnarsmáar gler/sílikon )
Stærð: 150x200 cm

Þvottaleiðbeiningar:
Má þvo í þvottavél við 40° má EKKI fara í þurrkara.
ATH ef þú ert með 6kg teppi þarf þvottavélin þín að þola 8kg, ef þú ert með 8kg teppi þarf þvottavélin þín að þola 10 kg, ef þú ert með 10kg teppi þarf þvottavélin þín að þola 12kg. Má líka fara með í iðnaðarþvottahús þar sem þeir eru með mun stærri vélar sem þola meiri þyngd, EN BARA MUNA 40° og EKKI þurrkara og ekki "dry cleaning"