Skip to content

Skilmálar


Skilafrestur og endurgreiðslu réttur
Kaupandi hefur 14 daga til þess að hætta við kaupin og er varan endurgreidd að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt. Varan skal vera ónotuð, henni sé skilað í upprunalegu ástandi, í upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Skilafresturinn hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.  Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.


Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
KA heildverslun 

Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við kaheildverslun@gmail.com


Verð
Öll verð í netverslun eru með 24% virðisaukaskatti (VSK) Vinsamlegast athugið að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara, vegna rangra verðupplýsinga eða prentvillna.